Íslenskum fjárfestum var boðið að taka þátt í opinberri heimsókn til Kigalií Rwanda 1.-4. mars 2008 með þýskum fjárfestum sem eru í fjárfestingum með Christian Angermayer sem er einn af fimm eigendum Altira http://www.angermayer-brumm-lange.de/en/beteiligungen/altira en fyrirtækið rekur fjölmarga sjóði með góðum árangri. Við lentum í Kigali rétt fyrir átta að kvöldi 1. mars og var okkur ekið á Hotel Serena. Klukkan níu var móttaka á hótelinu þar sem ráðherra fjárfestinga Mr. Donald Kaberuka ásamtfylgdarliði tóku á móti okkur og buðu okkur velkomin. Þar var einnig mættur sendiherra Þýskalands í Rwanda ásamt starfsfólki Kristians sem þarna erstaðsett. En Christian byrjaði að fjárfesta í Rwanda í janúar síðastliðin 20 milljón USD og ætlar að auka við fjárfestinguna um 50 milljón USD í apríl /maí á þessu ári.

