|
Íslenskir fjárfestar hf. hófu starfsemi sína árið 1994. Fyrsti stjórnarformaður fyrirtækisins var Eyjólfur Konráð Jónsson og með honum í stjórn voru Karl Jóhann Ottósson ásamt Ragnari Halldórssyni. Fyrirtækið hóf starfsemi sína í Hafnarstræti 7 en flutti í september 2002 í Skógarhlíð 12, í maí 2007 flutti fyrirtækið í eigið húsnæði að Skipholti 50c.
Fyrirtækið er hlutafélag með u.þ.b. 10 hluthöfum. Íslenskir fjárfestar hf., er óháð verðbréfamiðlun sem rekur ekki eigin verðbréfasjóði og veitir þar af leiðandi viðskiptavinum sínum hlutlausa ráðgjöf. Íslenskir fjárfestar hf., hafa sérhæft sig í miðlun fjárfestinga í erlendum verðbréfasjóðum aðallega hlutabréfasjóðum ásamt því að reka miðlun verðbréfa sem skráð eru í Kauphöll Íslands.
Viðskiptavinir Íslenskra fjárfesta eru allt frá sparifjáreigendum til stærri fjárfesta svo sem stofnanafjárfesta.
Starfsfólk Íslenskra fjárfesta hf:
|